Rannsóknir sýna að erfðir geta ráðið miklu um bein-þynningu síðar á ævinni. Þá eru konur í þrefalt meiri hættu en karlar. Mikið hreyfingarleysi og kyrrsetur auka einnig líkurnar á beinþynningu og reykingar og óhófleg neysla kaffis eða áfengis geta hraðað rýrnun beinanna. Þegar ungt fólk fær ekki reglubundna líkamsáreynslu og nægilegt kalk og D-vítamín getur það komið niður á því síðar á ævinni.
Grannvaxnar konur virðast hafa meiri tilhneigingu til beinþynningar en aðrar. Barnshafandi konur og þær sem eru við tíðahvörf þurfa sérstaklega að huga að þessum vanda. Einnig eru aldraðir í áhættuhópi. Með hormónameðferð við tíðahvörf er hægt að halda í horfinu en slík meðferð getur haft aukaverkanir og hentar ekki öllum.